Minecraft
Minecraft er gríðarlega vinsæll leikur sem flestir grunnskóla- og framhaldsskólanemendur þekkja í dag. Minecraft er opinn leikheimur í þrívíðri veröld sem gengur út á að byggja fallega hluti eða mannvirki úr kubbum. Kubbarnir eru allir af sömu stærð og lögun en þeir hafa misjafnt útlit sem tákna eiginleika þeirra eins og gler, gras, mold, múrsteina ofl. Sagt er að þú getir byggt allt í Mindcraft sem þú nærð að ímynda þér, allt frá einföldum hlutum uppí risastór listaverk og flókin mannvirki, eina hindrunin er ímyndunaraflið þitt. Í leiknum byrjar maður með ekkert milli handanna en nær svo að safna saman ýmsum hlutum sem hægt er að nota við mannvirkjagerðina.

Að nýta Minecraft í námi og kennslu
Minecraft er ekki bara leikur því hann getur nýst á fjölbreyttann hátt bæði í námi og kennslu og þjálfar ákveðna rökhugsun hjá þeim sem spila leikinn. Hann þjálfar án efa verkfræðilega- og stærðfræðihugsun og eykur listræna sköpun. Nú er komin sérstök útgáfa af leiknum sem kallast Minecraft edu og er sérstaklega ætluð fyrir nám og kennslu. Leikurinn var hannaður af nokkrum kennurum og er hann meðal annars þeim eiginleikum gæddur að margir geta verið í sama leiknum á sama tíma og hann er hann notendavænni og einfaldari fyrir kennara sem vilja setja upp leik fyrir sína nemendur. Kennarar geta einnig leiðbeint nemendum sínum í gegnum leikinn, stjórnað og tekið þátt.
Ef við skoðum stærðfræðina sérstaklega þá er hægt að nota Mindcraft til að kenna hana á ótal vegu, allt frá samlagningu og frádrætti upp í mikið flóknari dæmi. Það er auðvelt að ímynda sér hvernig hægt er að kenna brotareikning og margföldunartöfluna svo dæmi séu nefnd og á myndbandinu hér fyrir neðan er skemmtilegt dæmi um það.

Á myndbandinu hér fyrir neðan er sýnt hvernig hægt er að kenna hnitakerfið með Mindcraft, mjög einfalt og spurning hvort þetta sé betri leið en önnur en fyrir marga nemendur gæti þessi aðferð verið áhugaverðari og myndrænni en aðrar. Margir eiga erfitt með að ímynda sér hvernig stærðfræðin virkar en um leið og hún er komin myndrænt í tölvuleik er líklegt að hún sé strax komin nær nemendum.
Hér er síðan sýnt hvernig hægt er að kenna hlutfallareikning með Minecraft.