Á App Store og Play Store er ýmsa skemmtilega stærðfræðileiki að finna. Mjög margir þeirra eru fyrir börn en eins eru margir sem henta vel fyrir framhaldsskólanema og fyrir þá sem eru aðeins lengra komnir. Hér að neðan er að finna nokkra leiki sem henta vel nemendum í efri bekkjum grunnskóla og sem upprifjun fyrir framhaldsskólanema.
Symply Fractions
Symply Fractions eru stærðfræðileikir sem hægt er að sækja á Playstore. Fyrstu og einföldustu leikirnir eru gjaldfrjálsir en svo er hægt að kaupa leiki með aðeins erfiðari þrautum fyrir mjög vægt gjald.
Í leiknum kynnist nemandinn almennum brotum á myndrænan og auðveldan hátt. Leikurinn hentar mjög vel bæði til að læra almenn brot og sem upprifjun.

Sheppard Software
Sheppard Software er leikjasíða með allskonar stærðfræðileikjum sem henta vel fyrir nemendur sem þurfa að rifja upp grunnatrið stærðfræðinnar. Þar er að finna ótal marga leiki sem reyna meðal annars á algebru, samlagningu, aðgerðirnar fjórar, tugabrot, almenn brott og margt fleira. Leikirnir eru mjög aðgengilegir og ættu að auka skilning nemenda á myndrænan og skemmtilegan hátt.

2048
Leikurinn 2048 er mjög vinsæll leikur í dag. Í rauninni getur hver sem er spilað hann en hann gengur út á það að para saman tvær eins tölur og í lokin áttu að enda með töluna 2048. Leikurinn eflir rökhugsun og þarf miklar stærðfræðilegar pælingar til þess að vinna leikinn. Hægt er að sækja leikinn frítt, bæði í síma og í tölvu. Hér fyrir neðan er smá kynningarmyndband um það hvernig leikurinn virkar og hvaða hugsun er á bakvið hann.